Hálskirtlataka - fullorðinna

Hálskirtlataka - fullorðinna

Ástæður hálskirtlatöku

Hálskirtlar eru eitilvefur sem tilheyrir varnarkerfi líkamans. Hann hefur þýðingu fyrstu 2-3 ár ævinnar, eftir það gerir hann ekki gagn. 

Helstu ástæður aðgerðarinnar eru langvinnar og endurteknar sýkingar eða ofvöxtur sem hefur heftandi áhrif á svefn og/eða mataræði og samverkandi þættir eins og kögglamyndun í kirtlum, andremma og særindi í koki. 


Undirbúningur, aðgerð og dvöl á vöknun

Þú kemur fastandi og aðgerðin er gerð í svæfingu. Mikilvægt er að taka paracetamól klukkutíma fyrir en aðeins má taka töflurnar með vatni. Hægt að taka stíla í stað tafla í sömu skömmtum. 

Oftast er settur æðaleggur áður en þú sofnar og svæfingalyf gefið í æð. 

Á vöknun er gefin ógleðistyllandi- og verkjalyf eftir þörfum og leggurinn svo fjarlægður fyrir heimferð. Þú færð að fara heim þegar þér líður vel og getur drukkið. 

Það þarf einhver að sækja þig alla leið upp á Læknastofurnar og fylgja þér heim.


Verkir og verkjameðferð

Þú getur fundið fyrir verkjum í hálsi og tungu í um 10-14 daga og eru þeir oftast verstir á morgnana. Verkurinn getur verið bæði staðbundinn og leitt út í eyru. Gott er að taka verkjalyf klukkustund fyrir máltíð samkvæmt fyrirmælum læknisins. 

Þú mátt alls ekki taka lyf sem innihalda Aspirín eða önnur bólgueyðandi lyf s.s. Íbúfen, Naproxen, Voltaren eða Vóstar, vegna blæðingahættu, á meðan hálsinn er að gróa, en það tekur um tvær vikur. Þú færð lyfseðil með þér heim sem inniheldur Paracetamol og Kódein. Kódein getur stundum valdið ógleði sérstaklega í stórum skömmtum og þá er hægt að taka bara Parasetamól sem fæst án lyfseðils. Yfirleitt er líka skrifað upp á Celebra sem er bólgu - og verkjalyf, sem hefur ekki áhrif á blóðstorku.


Matur og drykkur

Það er mjög mikilvægt að drekka vel af vökva á meðan sárin eru að gróa. Þér er óhætt að borða flestan mat eftir aðgerðina en matur og drykkur má ekki vera heitur aðeins volgur. Flestum reynist samt best að borða fljótandi mjúka fæðu. Mörgum þykir gott að fá íspinna, þar sem áhrif kuldans eru verkjastillandi. Gott er að dreypa oft á klakavatni fyrstu sólahringana vegna verkjastillandi áhrifa. Heita drykki máttu drekka eftir tvær vikur. Ógleði og uppköst eru venjulega ekki vandamál eftir fyrsta sólahringinn.


Sárið og blæðingarhætta

Reynslan hefur sýnt að ef engar blæðingar eru strax eftir aðgerðina (á vöknun) er ekki hætta á blæðingu fyrr en eftir um það bil viku. Þegar hrúðrið á sárabeðinu losnar og þá getur rifnað ofan af æðum sem blæðir þá úr. Ef slík blæðin verður skaltu drekka ísvatn og skyrpa blóðinu, hafðu samband við lækni eða næstu bráða- eða slysamóttöku ef blæðingin er veruleg og stoppar ekki.

Til að forðast sýkingar er gott að halda munninum hreinum, bursta tennur 2-3 á dag, skola munninn vel með vatni eftir máltíðir.

Ekki er gott að ræskja sig harkalega meðan sárin eru að gróa. Eðlileg er að sterk lykt komi úr vitum fyrstu dagana eftir aðgerðina á meðan skánirnar eru að hverfa. Alls ekki kroppa í eða fjarlægja skánirnar.


Hiti

Eðlilegt er að hafa hitaslæðing, allt að 38°í viku eftir aðgerð. Hafðu samband við lækni ef hitinn fer hækkandi.


Neyðarsími fyrsta sólarhringinn eftir aðgerð er: 842 5333


  • Friðrik Páll Jónsson
  • Erlingur Hugi Kristvinsson


Share by: